Tilkynning til barnaverndar

Hverjum þeim sem hefur ástæðu til að ætla að barn búi við ofbeldi eða vanrækslu er skylt að tilkynna það til barnaverndarnefndar. Samkvæmt íslenskum barnaverndarlögum teljast einstaklingar yngri en 18 ára vera börn. Lögin ná einnig yfir ófædd börn t.d. ef þeim stafar hætta af vímuefnaneyslu móður eða af ofbeldi sem móðir verður fyrir.

Sá sem tilkynnir til barnaverndarnefndar verður að segja til nafns en ef óskað er nafnleyndar veit aðeins það starfsfólk sem kannar málið nafn tilkynnanda. Tilkynnandi þarf að gera grein fyrir nafni, netfangi og símanúmeri til þess að hægt sé að hafa samband til að fá nánari upplýsingar.

Ef málið þolir ekki bið er tilkynnanda vinsamlegast bent á að hafa samband símleiðis við 112. 

Tilkynning til barnaverndar

Tilkynnandi

Er óskað nafnleyndar?

Barn/börn sem tilkynning varðar

Er barn í bráðri hættu?