Útboð
Viðgerðir á steyptum gangstéttum í Hafnarfirði 2022
Útboð
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Viðgerðir á steyptum gangstéttum í Hafnarfirði 2022
Áætlað magn er 2.833 m²
Útboðsgögn verða afhend frá og með Fimmtudegi 7.april 2022
Útboðsgögn eru afhend rafrænt eftir að haft hefur verið samband við Halldór Ingólfsson verkefnastjóra hjá Hafnarfjarðarbæ með tölvupósti á netfangið halldor@hafnarfjordur.is
Gefa þarf upp nafn kontaktaðila, símanr ásamt nafni á fyrirtæki og kennitölu fyrirtækis. Í kjölfarið fær viðkomandi send útboðsgögnin í tölvupósti.
Skila þarf inn tilboðsgögnum í afgreiðslu Þjónustumiðstöðvar Hafnarfjarðar að Norðurhellu 2 fyrir opnun sem er þriðjudaginn 19.april 2022 kl 10:30
Á sama tíma verða tilboð opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.