Útboð
Þakviðgerðir
Útboð
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið: "Suðurbæjarlaug þakviðgerðir" þ.e. endurnýjun og lagfæring á þaki Suðurbæjarlaugar að Hringbraut 77 í Hafnarfirði.
Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu umhverfis- og framkvæmdasviðs Hafnarfjarðarbæjar að Norðurhellu 2, frá og með þriðjudeginum 16. júní 2020 kl. 10:00.
Tilboðum skal skila á sama stað, eigi síðar en fimmtudaginn 25. júní 2020 kl. 11:00. Tilboð verða opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska fimmtudaginn25. júní 2020 kl. 11:00.
Verkinu skal að fullu lokið 18. september 2020
Helstu verkþættir eru rif, viðgerðir og endurgerð á þaki og þakkanti:
- Stærð á þaki er 1252 m2
- Þakkantur er 143 m