Sólvangur, lóðafrágangur
Útboð
Sólvangur í Hafnarfirði – frágangur lóðar við útisvæði dagdeildar og nær til vesturhluta lóðarinnar sem liggur meðfram aðalbyggingu Sólvangs, ásamt frágangi á hluta lóðar við aðalinngang hjúkrunarheimilisins með aðgengi frá matsal.
Verkið nær til jarðvinnu, raflýsingar á lóð, regnvatnslagna og snjóbræðslu og almennum frágangi á gönguleiðum, gróðursetningum ásamt frágangi á búnaði og mannvirkjum innan lóðar.
Helstu verkþættir eru:
- Jarðvinna 100 m³
- Upprif á hellum og endurlögn að hluta 300 m²
- Snjóbræðslulagnir 500 lm
- Hellulögn 100 m²
- Grasþakning 100 m²
- Stofntré 9 stk, runnar og fjölæringar 200 stk
Útboðsgögn verða afhent frá og með fimmtudeginum 5. maí 2022.
Gögnin eru aðgengileg í gegnum útboðsgátt
Fyrirspurnir óskast sendar á Halldór Karlsson sem sinnir verkeftirliti í gegnum netfangið: halldor@rondhouse.is. Fyrirspurnartíma lýkur 12. maí 2022.
Útboðsfrestur
Skila þarf inn tilboðsgögnum í afgreiðslu þjónustumiðstöðvar Hafnarfjarðar að Norðurhellu 2 fyrir opnun sem er fimmtudaginn 19. maí 2022 kl. 11:00. Á sama tíma verða tilboð opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.