Útboð
Skarðshlíð – dæluhús og snjóbræðsla
Útboð
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í uppsteypu dæluhúss ásamt uppsetningu stjórn- og dælubúnaðar fyrir snjóbræðslukerfi í þrjár götur í Skarðshlíð og lagningu snjóbræðslustofnalagna að dæluhúsinu.
Útboðsgögn verða seld hjá umhverfis og skipulagssviði Hafnarfjarðarbæjar að Norðurhellu 2, frá og með mánudeginum 15. mars 2021. Verð kr. 3.000,-
Tilboð verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 07. apríl 2021, kl. 11:00.
Verklok eru 15. ágúst 2021.
Helstu magntölur eru:
- Veggjamót 70 m2
- Járnbending 860 kg.
- Steypa 15 m3
- Stofnlagnir snjóbræðslu 550 m
- Malbikun í þveranir 120 m2
- Þökulögn og gróðurbeð 800 m2