Útboð
Hreinsun gróðurbeða í Hafnarfirði
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í hreinsun gróðurbeða í Hafnarfirði.
Verkið felur í sér hreinsun gróðurbeða meðfram stofnleiðum. Beðin eru samtals um 7.000 m2. Um er að ræða beð að mismunandi lögun og með mismiklum gróðri.
Útboðsgögn verða seld hjá umhverfis- og skipulagssviði að Norðurhellu 2 frá og með mánudeginum 8. febrúar. Verð kr. 1.500.- Tilboð verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 23. febrúar 2021, kl. 10:15