Útboð
Hellisgerði - hellulögn á aðalgöngustíg
Útboð
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið, Hellulögn á aðalgöngustíg.
Hellisgerði er skrúðgarður hjarta Hafnarfjarðar. Fallegur gamall gróður er í garðinum, hærri tré og runnar og rætur sem eru viðkvæmar fyrir raski. Í dag eru flestir stígar malarstígar. Um er að ræða í þessum 1. áfanga að leggja aðkomutorg og aðalgöngustíginn með náttúrusteini að hluta og hellum. Svæðin verða snjóbrædd. Sjá nánar í útboðsgögnum.
Útboðið er almennt opið útboð.
Verklok eru 25. Október 2022.
Nálgast má útboðsgögnin á slóðinni: https://vsb.ajoursystem.is frá og með kl. 11:00 mánudaginn 18. júlí 2022.
Helstu stærðir:
- Aðkomutorg lagt með náttúrsteini 70 m²
- Göngustígur hellulagður 280m²
- Snjóbræðsla 350m