Útboð
Hamranes 1. áfangi
Útboð
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í gatnagerð, fráveitu- og neysluvatnslagnir, ásamt lögnum fyrir hitaveitu, rafveitu og fjarskiptalagnir vegna fyrirhugaðra framkvæmda við 1. áfanga í Hamranesi.
Útboðsgögn verða seld í þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar, Norðurhellu 2, frá og með fimmtudeginum 25. júní 2020. Verð kr. 5.000,- Tilboð verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 14. júlí 2020, kl. 11:00.
Helstu magntölur eru:
- Lengd gatna 1.145 m
- Uppúrtekt 10.000 m3
- Losun á klöpp í götustæði 3.200 m3
- Losun á klöpp í skurðstæði 11.900 m3
- Neðra burðarlag 9.300 m3
- Fyllingar 11.200 m3
- Malbik 10.900 m2
- Fráveitulagnir 2.250 m
- Skurðir veitna 1.550 m
Verklok eru 1. maí 2021, með áfangaskilum 1. október 2020.