Framkvæmdir frá Bæjartorgi upp Reykjavíkurveg
Uppfært eftir að frekari lokun var tilkynnt.
Fimmtudaginn 2. september er stefnt á að malbika Bæjartorg við Fjarðargötu/Reykjavíkurveg og upp Reykjavíkurveg í átt að Flatahraun ef veður leyfir. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 9 – 16. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum. Framkvæmd er á vegum Vegagerðarinnar.
Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning!
-------------------------------------------------
Þriðjudaginn 31. ágúst er stefnt á að fræsa Bæjartorg við Fjarðargötu/Reykjavíkurveg og upp Reykjavíkurveg í átt að Flatahraun ef veður leyfir. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 9:30 - 15:30.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum. Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning!