Framkvæmdir - Ástorg og inn Strandgötu
Föstudaginn 17. september er stefnt að því að malbika Ástorg og inn Strandgötu ef veður leyfir. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá klukkan 09:00 – 16:00. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum. Framkvæmd er á vegum Vegagerðarinnar.
Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning!