Fundur bæjarstjórnar Hafnarfjarðar verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, 2.september 2020 og hefst kl. 14:00.
Mánudaginn 31. ágúst milli kl. 9:30-16 verður lokað fyrir umferð í norðurátt frá Ástorgi um Strandgötu vegna framkvæmda. Hjáleið er um Ásbraut og Kaldárselsveg.
Nú er allt skólastarf komið á fullt og eftirlegutæki farin að vera fyrir og eru eigendur tækjanna vinsamlega beðnir um að fjarlægja þau strax.
Þriðjudaginn 25. ágúst, milli kl. 11:00-16:00, mun verktaki færa umferð á Reykjanesbraut í átt til Keflavíkur um Krýsuvíkurgatnamót vegna framkvæmda. Framkvæmdin hefur ekki áhrif á umferð í átt til Reykjavíkur.
Fimmtudaginn 27. ágúst, milli kl. 9:30 og 13:00, mun verktaki loka Reykjanesbraut milli Kaldárselsgatnamóta og Strandgötubrúar vegna framkvæmda. Hjáleið verður um Ásbraut.
Fundur bæjarstjórnar Hafnarfjarðar verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, 19. ágúst 2020 og hefst kl. 14:00.
Allar sundlaugar Hafnarfjarðar verða lokaðar á morgun, þriðjudaginn 18. maí. Ástæðan er heitavatnslokun á hluta höfuðborgarsvæðisins sem nær m.a. til Hafnarfjarðar.
Lokað verður fyrir heita vatnið á hluta höfuðborgarsvæðisins frá kl. 02:00 þriðjudaginn 18. ágúst til kl. 09:00 miðvikudaginn 19. ágúst n.k. Gera má ráð fyrir algjöru heitavatnsleysi á meðan lokun stendur.
Mánudaginn 17. ágúst verða truflanir á kaldavatninu í Kinnum frá ca. 9:00 – 12:00. Verið er að endurnýja lagnir í götunni og heimæðar.