Metnaðarfullur greinandi - sumarstarf hjá SSH
SSH leita að metnaðarfullum og kraftmiklum hagfræðiþenkjandi greinanda með þekkingu á miðlun og framsetningu gagna í sumarstarf. Starfið er tímabundið í 3-4 mánuði.
Helstu verkefni:
- Gagnagreining og vinnsla meðal annars tölfræðilegra gagna
- Greining og framsetning gagna og aðstoð við túlkun
- Miðlun gagna á vef, samfélagsmiðlum og á annan stafrænan hátt
- Skýrslugerð ásamt greinaskrifum
- Önnur verkefni sem styrkja ímynd og slagkraft SSH
Menntun og hæfniskröfur:
- Meistaranám á háskólastigi (meistaranemi) í hag-, viðskipta- eða verkfræði
- Þekking á vinnslu gagna og greiningum
- Gagnrýnin hugsun og greiningarhæfni
- Gott vald á miðlun gagna og rafrænum miðlum
- Góð íslensku- og enskukunnátta jafnt í ræðu sem riti
- Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni
- Frumkvæði, lausnamiðun og sjálfstæði í starfi'
SSH er samstarfsvettvangur þeirra sjö sveitarfélaga sem mynda höfuðborgarsvæðið og vinnur vettvangurinn markvisst að sameiginlegum hagsmunum sveitarfélaganna. Samtökin voru stofnuð 1976 og í dag eru þar fimm starfandi auk utanaðkomandi sérfræðinga og verkefnastjóra. Skrifstofur SSH eru í Hamraborg 9, Kópavogi.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar veitir Páll Björgvin Guðmundsson, sími: 580-1781 eða netfang pallbg@ssh.is.
Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl 2022.
Umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi berist í gegnum: www.alfred.is