Knatthús Hauka - 1. áfangi
Útboð
Hafnarfjarðarbær, Strandgötu 6, 220 Hafnarfirði, kt.: 590169-7579, auglýsir eftir tilboðum í verkið: Knatthús Hauka – 1. áfangi. Verkið felur í sér að byggja að Ásvöllum 1, fullbúinn knattsal með tæknirýmum, uppsteyptri þjónustubyggingu og lóðafrágangi.
Útboðið er almennt opið útboð.
Helstu stærðir hússins:
- Knattsalur 10.284 m², með fullbúnum knattspyrnuvelli í keppnisstærð, 68x105m, ásamt hliðarsvæðum.
- Inntaksrými 33 m².
- Þjónustubygging 873 m² (einungis uppsteypt).
Helstu magntölur:
- Steinsteypa ~5.400 m³.
- Stálvirki ~795 tonn.
- Þak knattsalar ~11.000 m².
- Loftræsing 72.000 m³/klst.
- Fullfrágenginn gervigrasvöllur 8.280 m².
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem eru rafræn og verða aðgengileg á www.utbodsgatt.is/hafnarfjordur/asvellir-knatthus-2022, miðvikudaginn 15. júní 2022.
Tilboðum skal skila rafrænt undir vefslóð útboðsins eða til umhverfis- og skipulagssviðs Hafnarfjarðar, Norðurhellu 2, eigi síðar en 11. ágúst 2022 kl. 14:00, þar sem tilboð verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.