|
Fundargerð ritaði: Ívar Bragason |
|
Mættir eru allir aðalbæjarfulltrúar að undanskildum þeim Friðþjófi Helga Karlssyni og Sigurði Þ. Ragnarssyni en í þeirra stað mæta þær Sigrún Sverrisdóttir og Bjarney Grendal Jóhannesdóttir.
Kristinn Andersen forseti bæjarstjórnar setti fundinn og stýrði honum.
Í upphafi fundar bar forseti upp tillögu um að mál nr. 1411192 - Barnaverndarmál, framkvæmdaáætlun yrði tekið inn á dagskrá fundarins og var það samþykkt samhljóða. |
|
|
Almenn erindi |
1. 1411192 - Barnaverndarmál, framkvæmdaáætlun |
Til máls tekur Helga Ingólfsdóttir.
Einnig tekur til máls Guðlaug Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur Helga Ingólfsdóttir. Guðlaug svarar andsvari.
Einnig tekur Jón Ingi Hákonarson til máls. Til andsvars kemur Helga Ingólfsdóttir og svarar Jón Ingi andsvari.
Bæjarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu fjölskylduráðs. |
|
|
|
|
|
2. 1911266 - Útsvarsprósenta við álagningu 2020 |
Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Til andsvars kemur Ágúst Bjarni Garðarsson og Adda María svarar andsvari. Þá kemur Ágúst Bjarni til andsvars öðru sinni sem Adda María svarar einnig örðu sinni.
Einnig tekur til máls Guðlaug Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur Rósa Guðbjartsdóttir og svarar Guðlaug andsvari.
Þá tekur til máls Jón Ingi Hákonarson.
Einnig tekur til máls Ágúst Bjarni Garðarsson. Til andsvars kemur Adda María Jóhannsdóttir.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum frá fulltrúum meirihluta ásamt fulltrúa Viðreisnar en þær Adda María Jóhannsdóttir, Sigrún Sverrisdóttir, Bjarney Grendal Jóhannesdóttir og Guðlaug Kristjánsdóttir greiða atkvæði á móti.
Guðlaug Kristjánsdóttir leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Bæjarlistans ítrekar afstöðu sína frá umræðu um fjárhagsáætlun fyrir árið 2019, þar sem gagnrýnd var sú ákvörðun meirihlutans að auka lántökur og halda til streitu lækkun útsvars og fasteignaskatta og þar með varpa kostnaði af rekstri bæjarins inn í framtíðina. Á síðasta kjörtímabili var áætlað sérstaklega fyrir umframgreiðslum inn á lán og hins vegar áskilið að mögulegar ófyrirséðar umframtekjur færu í sama farveg. Fulltrúi Bæjarlistans saknar slíkrar ráðdeildar í meðferð meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og óháðra. Það er ekki ábyrgt að afsala sér tekjum í nútíma en varpa þess í stað álögum inn í framtíðina á formi skulda. Ábyrgara væri að fullnýta skattstofna í rauntíma í ljósi núverandi rekstraraðstæðna bæjarsjóðs.
Adda María Jóhannsdóttir leggur fram svohljóðandi bókun:
Um leið og fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra leggja til að ekki eigi að nýta útsvarshlutfall til fulls stendur til að hækka gjaldskrár á tekjulága, eldri borgara og öryrkja langt umfram það sem mælst hefur verið til af hálfu Sambands íslenskra sveitarfélaga í tengslum við lífskjarasamninga. Slíka tillögu geta fulltrúar Samfylkingarinnar ekki stutt. Ágóðinn af lægra útsvari er hverfandi á hvern bæjarbúa og nýtist helst þeim sem hæstar hafa tekjurnar. Fyrirhugaðar gjaldskrárhækkanir koma hins vegar til með að hafa neikvæð áhrif á ráðstöfunartekjur þeirra hópa sem um ræðir. Við gagnrýnum þessa forgangsröðun og greiðum atkvæði gegn tillögunni.
Adda María Jóhannsdóttir Sigrún Sverrisdóttir
Ágúst Bjarni Garðarsson kemur að svohljóðandi bókun:
Framlögð fjárhagsáætlun sýnir að rekstur Hafnarfjarðarbæjar gengur vel og að fjárhagur bæjarfélagsins er traustur. Auk þess heldur skuldaviðmiðið áfram að lækka. Meirihlutinn hafnar þeirri tillögu fulltrúa Samfylkingarinnar um að hækka útsvarið upp í leyfilegt hámark. Slíkt hefði í för með sér tekjuskerðingu fyrir bæjarbúa eða með öðrum orðum; útborguð laun íbúa bæjarfélagsins lækka. Slíkt er ekki samræmi við stefnu núverandi meirihluta sem hefur það markmið að létta undir með fjölskyldufólki og jafnframt að tryggja að allar gjaldskrár sem snerta viðkvæmustu hópa samfélagsins séu ávallt þær lægstu á höfuðborgarsvæðinu.
|
|
|
|
|
|
3. 1808075 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2019 og 2020-2022 |
Bæjarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
|
|
|
|
|
|
4. 1206073 - HS veitur ehf, lóðarleigusamningar fyrir ýmsar lóðir |
Ólafur Ingi Tómasson víkur af fundi undir þessum lið.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að endurnýja og gera nýja lóðarleigusamninga við HS veitur í samræmi við fyrirliggjandi drög.
|
|
|
|
|
|
5. 1911252 - Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- Kópavogs og Garðabæjar fjárhagsáætlun 2020 og gjaldskrár |
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi gjaldskrá. |
|
|
|
|
|
6. 1909461 - Dofrahella 2, umsókn um lóð |
Bæjarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
|
|
|
|
|
|
7. 1808503 - Fjölmenningarmál |
Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir.
Einnig tekur til máls Helga Ingólfsdóttir. Til andsvars kemur Guðlaug Kristjánsdóttir.
Næst tekur Adda María Jóhannsdóttir til máls. Til andsvars kemur Helga Ingólfsdóttir og svarar Adda María andsvari. |
|
|
|
|
|
|
Fundargerðir |
8. 1901147 - Fundargerðir 2019, til kynningar í bæjarstjórn |
Til máls tekur Helga Ingólfsdóttir undir 2. lið í fundargerð fjölskylduráðs frá 22.nóvember sl. Til andsvars kemur Adda María Jóhannsdóttir og svarar Helga andsvari.
Einnig tekur til máls Sigrún Sverrisdóttir undir 5. lið í fundargerð fræðsluráðs frá 20. nóvember sl. |
|
|
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. |