Vika íslenskrar tungu í Hvaleyrarskóla
Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur um land allt síðstliðinn föstudag þann 16. nóvember. Í Hvaleyrarskóla, líkt og í öðrum skólum í Hafnarfirði , var Stóra-upplestrarkeppnin sett. Læsisteymi skólans ákvað að nýta tækifærið og leggja ríka áherslu á hið fallega íslenska tungumál í eina viku og lauk þeirri viku nú í morgun með samsöng á sal þar sem sungið var lagið „Á íslensku má alltaf finna svar“ eftir Þórarinn Eldjárn. Söngkonan Guðrún Árný tók þátt í flutningi lagsins með hópnum.
Það sem m.a. var tekið fyrir í vikunni í Hvaleyrarskóla er:
- Allir kennarar völdu sér orð, málshátt eða orðatiltæki dagsins sem þeir skrifuðu með töflutússi inn í talblöðru sem staðsett var á hurðinni á stofunni þeirra. Útskýring þurfti að fylgja orðinu, málshættinum eða orðatiltækinu
- Íslensk lög spiluð í kennslustundum þegar viðeigandi þegar nemendur voru að vinna
- Áhersla lögð á að kennarar lesi í nestistímum
- Bjarni Fritsson kom og las upp fyrir nemendur úr nýrri bók sinni
- Settur á sérstakur slangurskattur
Frábær vika íslenskrar tungu í Hvaleyrarskóla!