Undirbúningur fjölskyldugarða í fullum gangi
Frábært tækifæri fyrir alla áhugasama – einstaklinga og
fjölskyldur
Fjölskyldugarðar Hafnarfjarðar verða opnir öllum bæjarbúum og er hér um að ræða frábært tækifæri fyrir fjölskyldur og aðra til að rækta sitt eigið grænmeti og hugsa um í sumar. Fjölskyldugarðarnir verða opnir á Víðistöðum og á Öldugötu. Kostnaður fyrir garð er 1.500. kr. og fyrir tvo garða er greiðslan kr. 2.500.- Líkt og í fyrra er grænmeti eða annað efni ekki innifalið en aðgengi að vatni og minniháttar verkfærum verður til staðar. Garðarnir afhendast plægðir og úthlutun hefst í lok maí.
Skráning hefst í gegnum Mínar síður miðvikudaginn 13. maí.