Stuðningsfjölskyldur óskast
Fjölskylduþjónusta Hafnarfjarðar óskar að ráða stuðningsfjölskyldur í barnavernd og í fötlunarmálum, sem fyrst.
Tilgangur með stuðningsfjölskyldu er að draga úr álagi á heimili barna, veita börnum tilbreytingu og stuðning auk þess að gefa þeim kost á auknum félagslegum tengslum. Um er að ræða 1-2 helgar í mánuði þar sem börnin dvelja á heimili stuðningsfjölskyldunnar.
Greiðslur til stuðningsfjölskyldu eru verktakagreiðslur.
Upplýsingar um störfin veita:
- Barnavernd: Ólína Birgisdóttir félagsráðgjafi olina@hafnarfjordur.is og Soffia Ólafsdóttir félagsráðgjafi soffiao@hafnarfjordur.is
- Fötlunarmál: Guðrún Þ. Ingólfsdóttir gudruni@hafnarfjordur.is og Ásrún Jónsdóttir asrunj@hafnarfjordur.is