Setbergsskóli fagnar 30 ára afmæli
Starfsfólk og nemendur Setbergsskóla blésu til veislu í dag
í tilefni af 30 ára afmæli skólans með opnu húsi og veglegri afmælisdagskrá.
Allir nemendur skólans tóku þátt í að búa til listaverk sem samanstendur af óskum þeirra um framtíðina. Listaverkið prýðir nú einn stærsta vegg skólans. Í tilefni afmælis þótti einnig viðeigandi að nemendur skólans tækju við nýju og bættu leiksvæði á skólalóðinni í morgunsárið. Stór klifurkastali, hreiðurróla og rólur með gervigrasi að undirlagi.
Fjölmenni var á opnu húsi í Setbergsskóla í tilefni af 30 ára afmæli skólans
Hér má sjá þær Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra, Maríu Pálmadóttur skólastjóra og Fanneyju D. Halldórsdóttur fræðslustjóra við listaverk nemenda.
Ný leiktæki voru tekin til notkunar í morgunsárið í tilefni dagsins.
Saga skólans í stuttu máli
Setbergsskóli tók til starfa haustið 1989 en þá var fyrsti áfangi skólans tekinn í notkun. Síðan hefur verið byggt við skólann fjórum sinnum. Arkitektarnir Björn Hall og Jón Þór Þorvaldsson teiknuðu skólann en merki skólans er teiknað af Sigurði Einarssyni, arkitekt. Rendurnar þrjár í merkinu tákna setbergið sem er grunnur barnanna. Skólalóðin er mjög skemmtileg með leiksvæðum og gróðri og alltaf hefur lækurinn, sem liðast um hana, haft mikið aðdráttarafl. Stekkjarhraunið er hinum megin við lækinn með öllum þeim möguleikum sem það gefur til leikja og útikennslu. Frá 1993 hefur skólinn haft mikil samskipti við leikskólana í hverfinu og gott samstarf er á milli skólastiganna. Árið 1997 fékk skólinn þróunarstyrk til að auka samstarf leik- og grunnskóla. Auk þess hefur skólinn verið í mjög góðu samstarfi við framhaldsskólastigið.
Sjá nánar allar upplýsingar um Setbergsskóla á heimasíðu skólans