Góðverk á aðventunni
Áslandsskóli styrkir Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar.
Undanfarin tíu ár hefur skólasamfélagið í Áslandsskóla; kennarar, foreldrar og nemendur, styrkt Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar með frjálsum framlögum fyrir jólin. Fulltrúar nefndarinnar komu á jólaskemmtun í Áslandsskóla í dag, þriðjudaginn 20. desember, og tóku við framlagi úr hendi Leifs S. Garðarssonar skólastjóra. Í ár söfnuðust 318.746.- krónur. Á tíu árum hefur skólasamfélagið í Áslandsskóla því styrkt Mæðrastyrksnefnd um alls 2.417.441.- krónur. Þessi hugsun til þeirra sem minna mega sín tengist einni af fjórum hornstoðum skólans, þjónustu við samfélagið.