janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember

Fyrsta skóflustungan að nýjum búsetukjarna fyrir fatlað fólk við Öldugötu 45 var tekin í dag að viðstöddum m.a. væntanlegum íbúum. Um er að ræða sérhannað heimili fyrir fatlað fólk. HBH Byggir ehf. sér um uppbyggingu kjarnans og er gert ráð fyrir að íbúðirnar afhendist í apríl 2021.
Þriðji þáttur Vitans, hlaðvarps Hafnarfjarðarbæjar er kominn í loftið. Í þessum þætti ræðir Árdís Ármannsdóttir samskiptastjóri við Andra Ómarsson verkefnastjóra viðburða. Andri veitir hlustendum gott yfirlit yfir þann fjölda fjölbreyttu viðburða sem í boði eru í Hafnarfirði yfir árið, ræðir samheldni Hafnfirðinga, sérstöðu bæjarins og mikilvægi einstaklingsframtaksins fyrir samfélagið í heild sinni. Svo styttist í jólin og undirbúningur Jólaþorpsins í Hafnarfirði kominn á fullt!
Hafnarfjarðarbær hefur tekið ákvörðun um skipulagsvinnu og uppbyggingu á landsvæði sem nefnist Hamranes. Svæðið er sunnan við Ásvallabraut, Velli 6 og Skarðshlíð. Svæðið er um 25 hektarar að stærð og verður tenging inn á svæðið frá Ásvallabraut. Leitað er eftir þróunaraðilum að fyrsta áfanga svæðisins.
Leikskólinn Hjalli hóf starfsemi 25. september 1989 undir stjórn Margrétar Pálu. Í dag fagnaði leikskólinn 30 ára afmæli með nemendum, starfsmönnum, bæjarstjóra, frumkvöðlinum sjálfum og fleiri gestum. Leikskólinn Hjalli hefur á þessum árum stimplað sig inn sem leikskóli sem fer óhefðbundnar leiðir í svo margþætti tilliti.
Skólaárið 2019-2020 verður unnið að gerð nýrrar menntastefnu fyrir Hafnarfjörð. Við gerð stefnunnar er leitað til hagsmunaaðila og annarra eftir athugasemdum og hugmyndum.
Haustið 2019 verður tekið upp nýtt fyrirkomulag við móttöku grunnskólanemenda af erlendum uppruna í Hafnarfirði sem felst í því að lagt verður stöðumat fyrir grunnskólanemendur af erlendum uppruna þegar þeir hefja skólagöngu í sveitarfélaginu. Stöðumatið er að sænskri fyrirmynd og var þýtt og staðfært með leyfi sænskra skólayfirvalda með milligöngu Menntamálastofnunar.
Hafnarfjarðarbær kynnti nýlega til sögunnar nýja hlaðvarpið Vitann. Í fyrsta þætti Vitans ræddi Sigurjón Ólafsson við Björn Pétursson bæjarminjavörð. Nú er annar þáttur kominn í loftið, spjall við Evu Michelsen verkefnastjóra Lífsgæðaseturs St. Jó.
Sundlaugarsvæði Suðurbæjarlaugar verður lokað um helgina. Ráðgert að laugin opni að nýju mánudaginn 23. september. Ásvallalaug er opin alla helgina!
Námsaðstoð Rauða krossins á Bókasafni Hafnarfjarðar er aftur komin á fullt eftir sumarfrí. Aðstoðin er fyrir öll börn í 1.-10. bekk og fer fram alla þriðjudaga frá kl. 15-17.
Umhverfisstofnun stendur fyrir Plastaþoni dagana 27. og 28. september næstkomandi. Plastaþon er hugmyndasmiðja fyrir þá sem brenna fyrir umhverfismálum og nýsköpun og er öllum velkomið að skrá sig til leiks. Þátttakendur mynda teymi og vinna saman að lausnum við þeim áskorunum sem heimurinn stendur frammi fyrir varðandi ofnotkun á plasti.