17. júní - þín þátttaka?
17. júní skemmtiatriði - auglýst eftir skemmtiatriðum
Þjóðhátíðarnefnd Hafnarfjarðarbæjar auglýsir eftir skemmtiatriðum á 17. júní. Í dagskránni er gert ráð fyrir barna- og fjölskylduskemmtunum á Thorsplani, leiktækjum og ýmsum sýningum og götuuppákomum í miðbænum.
Vinsamlega sendið inn hugmyndir að allskonar atriðum og uppákomum á framkvæmdastjóra 17. júní, Geir Bjarnason: geir@hafnarfjordur.is eða skriflega til Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, 220 Hafnarfjörður merkt 17. júní.
Tekið verður við hugmyndum til 7. maí