Vertu með! Aukum þátttöku barna af erlendum uppruna
Hvernig á að ná betur til fólks (barna og ungmenna) af erlendum uppruna og fjölga því í skipulögðu íþróttastarfi?
Hvernig á að ná betur til fólks af erlendum uppruna og fjölga því í skipulögðu íþróttastarfi?Þessi spurning hefur aldrei verið mikilvægari en einmitt nú!
Vertu með! Aukin þátttaka barna og ungmenna af erlendum uppruna í íþróttum er yfirskrift málþings sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Ungmennafélag Íslands standa fyrir miðvikudaginn 25. maí á hótel Nordica kl. 09:00 – 12:00. Starfsfólk, stjórnendur og sjálfboðaliðar íþróttahreyfingarinnar sem og starfsfólks sveitarfélaga er sérstaklega boðið velkomið. Viðburðinum verður einnig streymt á Facebook
Aðgangur er ókeypis. Léttar veitingar í boði. Skráning fer fram hér
Reynslusögur og hugmyndir að lausnum og leiðum
Áhugaverð og gagnleg erindi eru á dagskránni og fá gestir að heyra frá því hvernig forsvarsfólk nokkurra íþróttafélaga og sveitarfélaga hefur náð betur en áður til barna og ungmenna af erlendum uppruna og fjölgað þeim í skipulögðu íþróttastarfi. Gaman og gagnlegt verður fyrir alla að heyra hugmyndir ráðstefnugesta sem geta bætt leiðirnar og gert gott starf enn betra.
Dagskrá málþings
Kl. 09:00 Málþing hefst - ÍSÍ og UMFÍ
- Ávarp ráðherra Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.
- Hver er staðan á þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í dag? Margrét Lilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá R&G.
- Samtal og samvinna – Mikilvægi þess að ræða við börn, unglinga og fullorðna um viðfangsefni þeirra og virkni.
- Jóhannes Guðlaugsson, verkefnastjóri, þjónustumiðstöðinni í Breiðholti.
Kl. 10:00 Kaffihlé
Kl. 10:15 Reynslusögur og hugmyndir að lausnum og leiðum
- Allir með í Reykjanesbæ. Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, verkefnastjóri fjölmenningarmála.
- Örfrásagnir af fjórum ólíkum verkefnum. Ragnar Sverrisson, Dagný Finnbjörnsdóttir, Kristín Þórðardóttir og Sarah Smiley.
- Fjölmenningarverkfærakista Æskulýðsvettvangsins. Sema Erla Serdar, framkvæmdastýra ÆV.
- Samantekt, hvaða verkfærum kallar íþróttahreyfingin eftir?
Kl. 12:00 Dagskrárlok
Aðgangur er ókeypis. Léttar veitingar í boði.
Mikilvægt er að þátttakendur skrái sig eins fljótt og auðið er.
Nokkur sæti laus í sal - fullt laust á streymi!