Viðburðir framundan
Opin hlaupaæfing hjá Hlaupahópi FH
Fyrir alla áhugasama
Hlaupahópur FH ætlar að hafa opna hlaupaæfingu fyrir alla hlaupara eða alla þá sem hafa áhuga á hlaupum þriðjudaginn 28. september kl. 17:30 í tilefni af Íþróttaviku Evrópu (European Week of Sport) sem haldin er dagana 23. – 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum. Allir velkomnir!
Hlaupahópur FH tekur þátt í Íþróttaviku Evrópu 2021
Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin dagana 23. – 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum þar sem Evrópubúar sameinast undir slagorðinu #BeActive. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi.