Viðburðir framundan
Opið hús hjá Hestamannafélaginu Sörla
Opið hús fyrir alla áhugasama
Hestamannafélagið Sörli er med opið hús í félagshesthúsi Sörla, þar sem fólk getur komið og fræðst um starf félagsins, miðvikudaginn 29. september frá kl. 15.00 - 18.00. Félagshesthús Sörla er við Sörlaskeið 24, 221 Hafnarfirði.
Hestamannafélagið Sörli tekur þátt í Íþróttaviku Evrópu 2021
Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin dagana 23. – 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum þar sem Evrópubúar sameinast undir slagorðinu #BeActive. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi.