Viðburðir framundan
Tónlistarganga
Hafnarfjarðarbær stendur fyrir lýðheilsugöngum á miðvikudögum í september í samstarfi við Ferðafélag Íslands undir kjörorðunum „Lifum og njótum“. Um er að ræða fjölskylduvænar göngur sem taka um 60-90 mín. Tilgangurinn með verkefninu er sem fyrr að hvetja fólk á öllum aldri til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði. Lögð verður áhersla á sömu þemu og í fyrra, þ.e. náttúru, vellíðan, sögu og vináttu.
12.september kl.18 – Jónatan Garðarsson leiðir tónlistargöngu um miðbæ Hafnarfjarðar þar sem farið verður yfir helstu samkomustaði bæjarins sem voru vinsælir hér á árum áður fyrir böll og tónleikahald. Gangan hefst við Byggðasafnið.