Viðburðir framundan
Kringum hamarinn
Ólafur Þ. Harðarson leiðir göngu í kringum Hamarinn og fjallar um sögu skóla og íþrótta á svæðinu. Gengið frá Flensborgarskólanum.
Ólafur Þ. Harðarson leiðir menningar- og heilsugöngu í kringum Hamarinn og fjallar um sögu skóla og íþrótta á svæðinu. Gengið verður frá Flensborgarskólanum.
Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir!
Menningar- og heilsugöngur 2022
Í sumar er boðið upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga. Göngurnar eru samstarfsverkefni Bókasafns Hafnarfjarðar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Hafnarborgar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Flestar göngur taka um klukkustund.
Komdu út að ganga í sumar!