Bæjarlistamaður

Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar er útnefndur árlega. Tilkynnt er um valið við hátíðlega athöfn á síðasta vetrardag í upphafi bæjarhátíðarinnar Bjartra daga. Einungis starfandi listamenn með fasta búsetu í Hafnarfirði koma til greina við úthlutun og er miðað við lögheimili síðustu 12 mánuði.

Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2023 fær greidda eina og hálfa milljón króna.

Árlega er óskað er eftir umsóknum og rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd hefur til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni. Umsóknum og ábendingum skal skilað á rafrænu eyðublaði, með tölvupósti á menning@hafnarfjordur.is eða í Ráðhús Hafnarfjarðar merkt: 

Þjónustuver Hafnarfjarðar – Bæjarlistamaður
Strandgata 6
220 Hafnarfjörður

Skilafrestur tilnefninga er til  1.febrúar.

Bæjarlistamenn Hafnarfjarðar
2023 Pétur Gautur Myndlistarmaður
2022 Björn Thoroddsen Gítarleikari
2021 Friðrik Dór Jónsson Tónlistarmaður
2020 Bergrún Íris Sævarsdóttir Rithöfundur
2019 Björk Jakobsóttir Fjöllistakona
2018 Björgvin Halldórsson Tónlistarmaður
2017 Steingrímur Eyfjörð Myndlistarmaður
2014 Andrés Þór Gunnlaugsson Tónlistarmaður
2009 Jóhanna Guðrún Jónsdóttir Tónlistarmaður
2008 Sigurður Sigurjónsson Leikari
2007 Jónína Guðnadóttir Myndlistarkona
2006 Elín Ósk Óskarsdóttir Söngkona
2005 Sigrún Guðjónsdóttir - Rúna Myndlistarkona

Ekki voru útnefndir bæjarlistamenn á árunum 2010-13 og 2015-16.