Fræ til framtíðar
Fræjum dreift inn á öll heimili í Hafnarfirði
Heimaræktun er gefandi verkefni fyrir alla fjölskylduna
Heilsubærinn Hafnarfjörður færir öllum heimilum í Hafnarfirði nú sumargjöf til marks um grósku, vöxt og vellíðan. Gjöfin á að fá íbúa í Hafnarfirði til að staldra við, draga andann létt, lifa í núinu og huga að mikilvægi eigin ræktunar í öllum skilningi. Um er að ræða fræpakka með fimm fræjum að kryddjurtum til eigin ræktunar. Heimaræktun er gefandi verkefni fyrir alla fjölskylduna. Fyrir fjórum árum var Hafnfirðingum sendur heilsueflandi spilastokkur sem vakti mikla hrifningu.
Fræpakkinn, sem nú hefur borist inn á öll hafnfirsk heimili sem heimila fjölpóst og munu líklega fara í dreifingu víðar í Hafnarfirði, hefur að geyma blandaðar kryddjurtir og er áætlaður spírunartími 10-20 dagar.
Laufléttar leiðbeiningar
- Taktu fræspýtu af stokki.
- Þrýstu merktum enda ofan í mold upp að striki. Vökvaðu.
- Fræspýtan á að vera óhreyfð á með hún vex. Sýndu alúð, áhuga og þolinmæði.
Fjölskyldugarðar Hafnarfjarðar – viltu taka heimaræktunina skrefinu lengra?
Fjölskyldugarðar Hafnarfjarðar eru opnir öllum bæjarbúum og er um að ræða frábært tækifæri fyrir fjölskyldur og einstaklinga í Hafnarfirði til að rækta sitt eigið grænmeti og hugsa um í sumar. Fjölskyldugarðarnir verða opnir á Víðistöðum og á Öldugötu. Kostnaður fyrir einn garð er kr. 1.579.- og fyrir tvo garða kr. 2.632.- Líkt og hin síðari ár er grænmeti eða annað efni til ræktunar ekki innifalið en aðgengi að vatni og minniháttar verkfærum áfram til staðar. Garðarnir afhendast plægðir og hefst úthlutun undir lok maí ár hvert.
Opnað er fyrir umsóknir í kringum Sumardaginn fyrsta - velja þarf sveitarfélag og staðsetningu á fjölskyldugarði sem óskað er eftir (fjölskyldugarður Öldutún/fjölskyldugarður Víðistaðir)
Ævintýrabærinn Hafnarfjörður
Eitt af
meginmarkmiðum heilsubæjarins Hafnarfjarðar er að hvetja bæjarbúa til að hlúa
vel að andlegri og líkamlegri vellíðan og heilsu. Þannig hefur heilsubærinn
brugðið á það ráð að læða reglulega að íbúum heilsueflandi hugmyndum og
upplýsingum um þá möguleika sem leynast í upplandi Hafnarfjarðar og í þeim
útivistarperlum og -svæðum sem finna má víða um bæinn.
- Heilt stafróf af hugmyndum
- Litli Ratleikur Hafnarfjarðar
- Áhugaverðir staðir í Hafnarfirði
- Útivist og náttúra
- Sundlaugarnar okkar - frítt fyrir 17 ára og yngri
- Bókasafn Hafnarfjarðar
- Byggðasafn Hafnarfjarðar - frír aðgangur
- Hafnarborg - frír aðgangur
Metnaðarfull heilsustefna fyrir heilsubæinn Hafnarfjörð
Hafnarfjarðarbær gekk til samninga við Embætti
landlæknis í mars 2015 um þátttöku í verkefninu Heilsueflandi samfélag og hefur
sveitarfélagið í samstarfi við íbúa, starfsmenn og aðra hagsmunaaðila mótað heilsustefnu
Hafnarfjarðarbæjar og lagt fram aðgerðaáætlun sem talar beint saman við
stefnuna. Í heilsustefnu Hafnarfjarðar er eitt aðalmarkmiðið að hlúa að
almennri vellíðan íbúa, andlegri og líkamlegri, á öllum aldri og styrkja og
efla sjálfsmynd og góða líðan. Heilsustefnan styður við þá sýn
Hafnarfjarðarbæjar til framtíðar að auka vellíðan íbúa bæjarins með
fyrirbyggjandi aðgerðum.
Sjá heilsustefnu Hafnarfjarðarbæjar HÉR
Hreyfum okkur, borðum hollt, ræktum okkur sjálf og smá jurtir í leiðinni!