Vesturkot
Miklaholt 1
Sími: 565 0220 | Netfang: vesturkot@hafnarfjordur.is | Vefsíða
Leikskólinn Vesturkot er staðsettur á Hvaleyrarholtinu. Víðáttan er mikil í nágrenni leikskólans og útsýnið er stórkostlegt. Keilir gnæfir við í suðri og Snæfellsjökullinn blasir við í allri sinni dýrð. Stutt er í ósnortna náttúruna þar sem úfið hraunið er við túnfótinn og örstutt er í fjöruna. Leikskólinn Vesturkot dregur nafn sitt af bænum Vesturkoti sem var síðasti byggði bærinn á Hvaleyrinni.
Alls dvelja að meðaltali 84 börn á aldrinum 18 mánaða til sex ára í leikskólanum yfir daginn og er boðið upp á breytilegan dvalartíma. Húsnæðið er 630 m2, þar af er leikrými 308 m2 og á lóð leikskólans hefur náttúran fengið að halda sér óbreytt að miklu leyti.