Tjarnarás
Kríuás 2
Sími: 565 9710 | Netfang: tjarnaras@hafnarfjordur.is | Vefsíða
Leikskólinn Tjarnarás er 4 deilda leikskóli sem rekinn er af Hafnarfjarðarbæ. Tjarnarás er 655m2, leikrými er 275m2 Hann tók formlega til starfa 4. september 2001. Deildirnar eru 4 og heita, Kærleiksheimar,Glaðheimar, Ljósheimar og Stjörnuheimar.
Í Tjarnarási er lögð áhersla á fjórar meginstoðir sem eru:
Fjölmenning
Börnin fá fræðslu varðandi önnur lönd og kynna þau lönd sem eiga þjóðhátíðardag hverju sinni. Þau læra að hugsa jákvætt til fólks í öðrum löndum og virða mismunandi menningarheima. Mikilvægt er að þau skynji að við erum öll íbúar jarðarinnar og eigum að bera virðingu hvert fyrir öðru. Lögð er áhersla á umburðarlyndi og samkennd.
Dyggðir
Lögð er rækt við eina dygð í tvo til fjóra mánuði í senn s.s. vináttu, umhyggju og þolinmæði. Rætt er um hvernig manneskjur verða góðar og hvernig þekkja megi muninn á réttu eða röngu. Söngvar, sögur, myndlist, leikir og ýmis verkefni tengjast hverri dygð.
Þjónusta við mannkynið
Áhersla er lögð á m.a. að fara sparlega með pappír og að kunna að njóta fegurðarinnar í náttúrunni.
Að gera sitt besta
Markmiðið er að starfsfólkið jafnt sem börnin leggi sig fram við öll verkefni.