Hlíðarberg
Hlíðarberg 1
Sími: 578 4300 | Netfang: hlidarberg@hafnarfjordur.is | Vefsíða
Leikskólinn Hlíðarberg er staðsettur í Setbergshverfi í Hafnarfirði og tók til starfa 25 mars 1993. Hann er fimm deilda og í honum geta dvalið 106 börn samtímis. Leikskólinn starfar samkvæmt lögum um leikskóla frá 2008 . Leikskólinn er rekinn af Hafnarfjarðarbæ og hefur Skólaþjónusta Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar eftirlit með fag og rekstrarlegum þáttum hans.
Annirnar í leikskólanum eru þrjár, þ.e. haust vor og sumarönn og tekur starfið mið af þeim. Vegna sumarleyfa er lokað í 20 virka daga . Einnig er leikskólinn lokaður í fimm virka dag á ári vegna skipulagsdaga. Gefið er út leikskóladagatal í upphafi hvers skólaárs þar sem hefðbundnir viðburðir leikskólans koma fram og þeir menningarviðburðir sem leikskólinn tekur þátt í.