Skarðshlíðarskóli
Hádegisskarð 1
Sími: 527 7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is | Vefsíða
Skarðshlíðarskóli er í Skarðshlíð í Hafnarfirði og var stofnaður árið 2017. Skólinn er heildstæður grunnskóli með nemendur frá 1.-10. bekk. Áætlaður nemandafjöldi skólaárið 2021-2022 er um 320 en þegar skólinn verður fullskipaður er gert ráð fyrir um 450 til 500 nemendum.
Í byggingu skólans er einnig starfrækur fjögurra deilda leikskóli og útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Gildi Skarðshlíðarskóla, samvinna, vinátta og þrautseigja eru höfð að leiðarljósi í öllu skólastarfi. Tákn skólans er fiðrildi sem er myndað úr tveimur hjörtum. Merkingin á bak við fiðrildið er að lítil púpa breytist í fallegt og litríkt fiðrildi líkt og grunnskólagangan á að vera umbreytingarferli fyrir nemendur.
Í skólastarfinu er lögð áhersla:
- Snemmtæka íhlutun
- Einstaklingsmiðað nám
- Sveigjanlega kennsluhætti
- Teymiskennslu
- Hreyfingu - Mílan
- Samvinnu við leik- og tónlistarskóla
Unnið er eftir aðferðafræði SMT-skólafærni sem miðar að því að efla jákvæð samskipti og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
Í skólanum er veitt:
- Náms og starfsráðgjöf
- Sálfræðiþjónusta
- Talmeinaþjónusta
- Þjónusta við nemendur með sérþarfir
- Stuðningur við tvítyngda nemendur
- Almenn barnavernd í samræmi við lög á hverjum tíma
Skólaráð er starfandi við skólann og sömuleiðis foreldrafélag.
Fjölbreytt félagslíf er í félagsmiðstöð skólans fyrir nemendur skólans og frístundaheimili fyrir nemendur í 1.-4. bekk eftir kennslu til loka vinnudags. Unnið er eftir starfsskrá tómstundamiðstöðva Hafnarfjarðar.
Skólastjóri er Ingibjörg Magnúsdóttir og aðstoðarskólastjóri er Rannveig Hafberg.