Hamranes - reitur 29B
Nýtt deiliskipulag
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 8. júní sl. að auglýsa nýtt deiliskipulag í Hamranesi í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Nýtt deiliskipulag fyrir reit 29B í Hamranesi.
Á reitnum sem úthlutað var sem þróunarreit er gert ráð fyrir tveimur 5 hæða fjölbýlishúsum með allt að 45 íbúðum. Gert er ráð fyrir bílakjallara ásamt bílastæðum á lóð.
Hægt er að kynna sér tillöguna hér:
Tillaga að deiliskipulagi - Hamranes, Hringhamar 39
Tillagan er auk þess til sýnis á umhverfis- og skipulagssviði að Norðurhellu 2 og í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar Strandgötu 6 frá 21. júní 2022.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Skal þeim skilað skriflega á netfangið skipulag@hafnarfjordur.is eigi síðar en 2. ágúst 2022 eða stílaðar á:
Hafnarfjarðarkaupstaður
bt. umhverfis- og skipulagssvið
Strandgata 6
220 Hafnarfjörður