Krýsuvíkurberg - tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Deiliskipulagsbreyting
Hafnarfjarðarbær auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi Krýsuvíkurbergs samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felur í sér færslu á framkvæmdasvæði fyrir útsýnispall til vesturs. Bílastæði snúið um nokkrar gráður og breyting á gönguleið.
Breytingartillagan verður til sýnis á umhverfis- og skipulagssviði að Norðurhellu 2 og í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar Strandgötu 6, frá 11. júní – 23. júlí 2021.
Einnig er hægt að skoða gögnin hér:
Krýsuvíkurberg tillaga (.pdf)
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar eigi síðar en 23. júlí 2021 . Skal þeim skilað skriflega á netfangið skipulag@hafnarfjordur.is eða á:
Hafnarfjarðarbær
bt. umhverfis- og skipulagssvið
Strandgötu 6
220 Hafnarfjörður