Hamranes reitur 4A
Nýtt deiliskipulag
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 24. nóvember 2021 að auglýsa eftirfarandi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hamranes reitur 4A, nýtt deiliskipulag
Tillagan gerir ráð fyrir tveimur sex hæða íbúðablokkum með 97 íbúðum. Á jarðhæð er gert ráð fyrir þjónustu og afþreyingu. Á lóð er heimilt að byggja 250 m2 sameiginlegt garðhúsi. Gert er ráð fyrir að bílastæðin séu staðsett á lóð.
Tillagan er til sýnis á umhverfis- og skipulagssviði að Norðurhellu 2 og í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar Strandgötu 6, frá 30. nóvember til 11. janúar. Auk þess er hægt að skoða tillöguna hér fyrir neðan:
Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Hamranes reit 4A
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna á netfangið: skipulag@hafnarfjordur.is, skriflega í þjónustuver að Strandgötu 6 eða á meðfylgjandi heimilisfang eigi síðar en 11. janúar 2022:
Hafnarfjarðarbær
B/t umhverfis- og skipulagssvið
Norðurhella 2
221 Hafnarfjörður
Nánari upplýsingar eru veittar á umhverfis- og skipulagssviði.