Hamranes reitur 27B
Nýtt deiliskipulag
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar auglýsir hér með tillögu að nýju deiliskipulag fyrir:
Hamranes reitur 27B
Tillagan gerir ráð fyrir að reisa tvö fimm hæða fjölbýlishús með 50 íbúðum ásamt reit fyrir einnar hæðar 30 m2 smáhýsi fyrir íbúa . Á jarðhæð sem snýr að Hringhamri er heimilt að vera með verslun og þjónustu.
Tillagan verður til sýnis á umhverfis- og skipulagssviði að Norðurhellu 2 og í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar Strandgötu 6, frá 25. janúar 2022. Auk þess er hægt að skoða tillöguna hér fyrir neðan:
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna. Skal þeim skilað skriflega á netfangið skipulag@hafnarfjordur.is eigi síðar en 9. mars 2022 eða stílaðar á:
Hafnarfjarðarbær
bt. umhverfis- og skipulagssvið
Strandgata 6
220 Hafnarfjörður
Nánari upplýsingar eru veittar á umhverfis- og skipulagssviði.