Hjallabraut 49
Þétting byggðar | Fjöldi íbúða um 10| Fjöldi íbúa um 25
Framkvæmdir hafnar
- Þétting byggðar
- Áætlaður fjöldi íbúða: 10
- Áætlaður fjöldi íbúa: 25
- Staða: Framkvæmdir hafnar
Uppbygging í grónu hverfi á jaðri útivistarsvæðis við Víðistaðatún
Einstök lóð að Hjallabraut 49 undir nýja byggð sérbýlishúsa í norðurbæ Hafnarfjarðar. Lóðin er við norðvestur jaðar Víðistaðatúns sem er vinsælt og fjölskylduvænt svæði með fjölbreyttum möguleikum til útivistar. Á lóðinni er heimilt að byggja þrjú einbýlishús á einni hæð og tvö tveggja hæða raðhús, annað með þremur íbúðum og hitt með fjórum. Samtals tíu sérbýli í skjólsælli og aðlaðandi vistgötu. Stutt er í alla verslun, þjónustu og menningu.
Hér hefur ný byggð verið teiknuð inn á loftmynd af núverandi svæði.
Í árslok 2014 var settur á laggirnar faglegur starfshópur til að meta þéttingarmöguleika innan bæjarins í þegar byggðum hverfum. Umrætt svæði í norðvesturhorni Víðistaðatúns er eitt þeirra svæða sem starfshópurinn benti á sem mögulegt svæði til uppbyggingar. Nýja byggðin er að meginhluta staðsett þar sem núverandi mön er meðfram Hjallabraut.