Ásvellir 3
Þétting byggðar | Fjöldi íbúða um 110 | Fjöldi íbúa um 270
Búið að úthluta lóð. Gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á árinu 2022
- Þétting byggðar
- Áætlaður fjöldi íbúða: 110
- Áætlaður fjöldi íbúa: 270
- Staða: Búið að úthluta lóð. Gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á árinu 2022
- Sérstaða: Vinsælt og fjölskylduvænt hverfi með fjölbreyttum möguleikum til hreyfingar, afþreyingar og útivistar. Stutt í alla þjónustu
Uppbygging í grónu hverfi við íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum
Um er að ræða einstaka fjölbýlishúsalóð á Ásvöllum 3 í Hafnarfirði. Á lóðinni er heimilt að byggja fjölbýlishús á 2-5 hæðum, alls 100-110 íbúðir. Bílastæði má hafa að hluta í bílkjallara á einni hæð. Um er að ræða einstaka og vel staðsetta lóð í grónu hverfi við íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum gengt Ásvallalaug og við friðland Ástjarnar. Stutt er í alla verslun, þjónustu og menningu. Vellirnir í Hafnarfirði eru vinsælt og fjölskylduvænt hverfi með fjölbreyttum möguleikum til afþreyingar og útivistar.
Uppbygging á Ásvöllum 3 - séð frá sundlaug