Fyrirsagnalisti
í gær var undirritaður samningur um aðstöðu leikskólans á Hlíðarenda fyrir skógardeild við Hvaleyrarvatn.
Á miðvikudaginn tók Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir við sem bæjarstjóri í Hafnarfirði af Guðmundi Rúnari Árnasyni.
Æskulýðs- og tómstundastarfsmenn Hafnarfjarðar stóðu fyrir árlegri
dorgkeppni á Flensborgarbryggju og er þetta 20. árið sem keppnin er
haldin. Sjónvarp Hafnarfjörður fylgdist með og ræddi við Geir Bjarnason
forvarnarfulltrúa Hafnarfjarðarbæjar.
Á opnunardegi Bjartra daga opnuðu listamenn í Hafnarfirði vinnustofur
sínar fyrir gesti og gangandi. Félagsskapurinn List við lækinn færði sig um set nýverið í
Dvergshúsi og opnaði vinnustofuna Dverghamar, en þar var Jórunn Jörundsdóttir fyrir svörum.
Á fimmtudagskvöldið á Björtum dögum opnuðu hafnfirskir listamenn vinnustofur sínar og verslanir. Við litum inn hjá Fríðu Jónsdóttur gullsmið og skartgripahönnuð en þar var jafnframt opnuð myndlistarsýning Margrétar Halldórsdóttur.
Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur hélt ásamt fjölda annara listamanna tónleika í Gamla bókasafninu á Björtum dögum á sunnudagskvöldinu. Bjart var og hlýtt í veðri svo listamaðurinn ákvað á síðustu stundu að leika fyrir áheyrendur utandyra. Hér er ein af perlum íslenskra einsöngslaga, Draumalandið, í látlausum og fallegum flutningi Svavars Knúts.
Einn af fjölmörgum hafnfirskum listamönnum sem opnuðu vinnustofur sínar á
Björtum dögum fyrir gesti og gangandi er Hulda Sigurðardóttir, sem bauð
fólki á pallinn til sín í blokkinni á Drekavöllum.
í þættinum Grannar er Fjölskyldu-og húsdýragarðurinn heimsóttur af Hafsteini Viðari Halldórssyni og Alexander Ágústssyni nemendum á fjölmiðlabraut Flensborgarskólans en sá síðarnefndi stjórnaði þættinum.
Í tilefni af mottumars kepptu lið lögreglunnar og slökkviliðsins í sundknattleik. Nemendur fjölmiðladeildar Flensborgarskólans fylgdust með
Róbótar í Listasafni Reykjavíkur. Ivan Svanur Corvese, nemandi í
fjölmiðladeild Flensborgarskólans, brá sér á fyrirlestra um róbóta í
Listasafni Reykjavíkur og kynnti sér félagsskapinn LornaLAB, en
félagsmenn eru áhugamenn um vélmenni úr ýmsum greinum lista og vísinda
og skilgreina félagið sem umræðugrundvöll fyrir miðlun tæknilegrar
þekkingar.
Fyrstu skemmtiferðaskipin sem koma til Hafnarfjarðar í ár komu snemma á fimmtudagsmorgun og létu úr höfn síðdegis.