Veturinn 1996–1997
var haldin keppni í upplestri meðal nemenda 7.
bekkjar í fimm skólum í Hafnarfirði og á
Álftanesi. Að þessari keppni stóð nefnd sem
kallaði sig ‘undirbúningsnefnd um landskeppni í
upplestri’. Að baki því nafni bjó sú ætlun
nefndarinnar að keppnin næði til landsins alls
innan fárra ára. Aðstandendur nefndarinnar frá
upphafi hafa verið
Heimili og skóli,
Íslensk
málnefnd,
Íslenska lestrarfélagið,
Kennaraháskóli Íslands,
Kennarasamband Íslands
og
Samtök móðurmálskennara. Árið 2003 bættust
Rithöfundasamband Íslands og
Samtök
forstöðumanna almenningsbókasafna í hópinn.
Vorið 2004 voru stofnuð formleg samtök,
Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn,
með aðild allra þeirra sem áður voru í
undirbúningsnefndinni, nema Íslenska
lestrarfélagsins, sem þá hafði verið lagt niður.
Raddir hafa séð um framkvæmd keppninnar síðan.
Upplestrarkeppnin er
haldin að frumkvæði áhugafólks um eflingu
tungunnar en er ekki greidd af yfirvöldum né
skilgreind opinberlega sem hluti af verksviði
skólayfirvalda.
Verkefnið hefur
hlotið afbragðsviðtökur skólafólks, og
sérstaklega ánægjulegt er að finna hvað
nemendur hafa sýnt mikinn áhuga á að leggja sig
fram um að lesa upp af listfengi.
Skólaskrifstofur hafa veitt keppninni
brautargengi í sínu umdæmi og lagt henni
ómetanlegt lið, en sjálft uppeldisstarfið,
ræktun upplestrarins, hefur hvílt á herðum
kennara.
Verkefnið hefur
notið velvilja og stuðnings í ríkum mæli.
Menntamálaráðherra, Lýðveldissjóður og
Málræktarsjóður styrktu verkefnið fyrstu árin,
bókaútgefendur hafa lagt til bókaverðlaun,
bankar og sparisjóðir veitt peningaverðlaun,
Mjólkursamsalan, kexgerðir og bakarí hafa lagt
til veitingar við lokahátíðir, en blómabúðir
blóm.
Frá upphafi hefur
verkefnið notið stuðnings
menntamálaráðuneytisins, auk þess sem fjölmargir
aðrir hafa styrkt verkefnið (í stafrófsröð):
Akureyrarbær, Barnavinafélagið Sumargjöf,
Byggðastofnun, Flugfélag Íslands, Fræðsluráð
Reykjavíkur, Edda, Garðabær, Kennaraháskólinn,
Kópavogsbær, Lýðveldissjóður, Málræktarsjóður,
Mjólkursamsalan, Mosfellsbær, Reykjanesbær,
Seðlabankinn, Seltjarnarnesbær, Skólaskrifstofa
Hafnarfjarðar og Sparisjóðirnir.