| | Stóra upplestrar keppnin
fyrir 7. bekk hófst veturinn 1996 - 1997 með þátttöku 223
barna í Hafnarfirði og á Álftanesi. Sex árum síðar voru
börnin 4579 úr 151 skóla hringinn í kringum landið.
|
| |
Upplestrarkeppnin er ekki
"keppni" í neinum venjulegum skilningi heldur
þróunarverkefni. Höfuðáherslan er lögð á bekkjarstarfið og að allir nemendur njóti góðs af.
|
| |
Keppnin er haldin að
frumkvæði áhugafólks um íslenskt mál í samvinnu við
skólaskrifstofur, skóla og kennara. Þátttaka í
upplestrarkeppninni stendur öllum 7. bekkjum landsins
til boða.
|
| |
Keppnin hefst á degi
íslenskrar tungu, 16. nóvember, ár hvert og lýkur
í mars. |
|
|