1. Nemandi skal alltaf vera stundvís.
  2. Nemendur skulu kappkosta að ganga vel um skólann sinn.  Sé nemandi staðinn að óviðunandi umgengni eru forráðamenn hans skaðabótaskyldir.
  3. Tilkynna skal forföll með eins góðum fyrirvara og unnt er.
  4. Ef kennari veikist er alltaf reynt að ná sambandi við heimili eða vinnustað foreldra.  Ef kennari er veikur lengur en eina viku er reynt að útvega forfallakennara.
  5. Ætlast er til að nemendur fari úr skóm og yfirhöfnum í anddyri skólans.  Gæta skal þess að skilja ekki eftir verðmæti í yfirhöfnunum.
  6. Nemendum er ekki heimilt að dvelja á kennaragangi,kennarastofunni og bókasafni nema með leyfi og undir eftirliti kennara.
  7. Vilji nemandi koma fram utan skólans er sjálfgefið að hann hafi samráð við kennara sinn.
  8. Sé börnum ekið í skólann skal ekki farið um inn fyrir tjörnina, nema með fatlaða nemendur.
  9. Ekið skal varlega um bílastæðið og rétt að brýna fyrir nemendum að gæta sína á umferð á stæðinu.
  10. Þegar óveður geisar gilda sömu reglur og í grunnskólum bæjarins þá er foreldrum í sjálfsvald sett  hvort þeir sendi börn sín í skólann eða ekki.




Hafnarfjarðarbær Tónlistarskóli Hafnarfjarðar | tonhaf@hafnarfjordur.is 
Strandgötu 51 | 220 Hafnarfirði | Pósthólf 23 | Sími 555 2704 | Bréfsími 565 4909