Helga Guðmundsdóttir var ritari í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar í mörg ár. Allir sem þekktu hana minnast hennar sem einstakrar konu. Helga reyndist öllum vel í skólanum bæði nemendum og kennurum. Helga lést 6. janúar 1992.
Þann 5. september árið 2001 afhenti Gunnlaugur Jón Ingason eiginmaður Helgu fé til stofnunar minningasjóðs um Helgu.
Markmið sjóðsins er að veita einum til þremur nemendum Tónlistarskóla Hafnarfjarðar viðurkenningu við skólaslit á hverju ári. Við val á nemendum sem verðlaunaðir verða skal litið til námsárangurs þeirra og hversu efnilegir þeir eru taldir.
Stjórn sjóðsins skipa Guðrún Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, dóttir Helgu,
Minningarkort er hægt að kaupa í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Blómabúðinni Burkna.
Tenglar |
Tónlist í Hafnarfirði |
Við störfum eftir: |
||
|
|