Viðburðir

Námsstefna -Hvernig er hægt að kenna viðeigandi boðskipti, félagsfærni og hjálpa börnum með frávik í málþroska ?

Áhersla á íhlutun, samstarf og hagnýtar hugmyndir heima og í leik- og grunnskóla. Einnig verður á staðnum til sýnis og sölu spennandi málörvunarefni og annað námsefni sem styrkir boðskipti, félagsfærni, tilfinningagreind og undirbýr börn fyrir lestur.

 Fimmtudaginn  29. nóvember 2012 á Grand hótel Rvk. kl. 09:00-16:00 Skráning. Skrá þarf nafn, heimilisfang og kennitölu greiðanda á eftirtalin netföng: asthildurs@hafnarfjordur.is  eða bergthoraolafsdottir@yahoo.com  Verð: 10.200 – kaffi og námskeiðsgjöld innifalið.

 Fyrirlesarar koma frá: Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, sjálfstætt starfandi talmeinafræðingum, leikskólanum Akraseli, Akranesi, leikskólanum Ægisborg, Reykjavík, Setbergskóla, Hafnarfirði Njarðvíkurskóla, Menntavísindasviði HÍ og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.

Ráðstefnustjóri: Ingibjörg Einarsdóttir, skrifstofustjóri.
Undirbúningur ráðstefnu: Bergþóra Ólafsdóttir, viðskiptalögfræðingur

Dagskrá
08:15-09:00 Skráning
09:00-09:10 Setning Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfirði.
09:10-09:40 Kynning á þróunarverkefni í Akraseli - Málörvun fyrir 2-3 ára börn. Fulltrúar frá leikskólanum Akraseli, Akranesi 09:40-10:10 Barn með dæmigerða einhverfu og fleiri greiningar. Mismunandi hugmyndafræði í hnotskurn - samstarf fagstétta með áherslu á foreldrasamstarf Fulltrúar frá leikskólanum Ægisborg, Reykjavík
10:10-10:30 Kaffi
10:30-11:00 Hvernig er hægt að efla viðeigandi boðskipti, félagsfærni og samstarf við foreldra og kennara . Ásthildur Bj. Snorradóttir, talmeinafræðingur
11:00-11:30 Kynning á hugmyndafræðinni á bak við Orðagull - málörvunarverkefni sem styrkir orðaforða, vinnsluminni. Einnig verður farið yfir hagnýtar leiðir varðandi samstarf sérfræðinga. Bjartey Sigurðardóttir, sérkennari og talmeinafræðingur
11:30-12:00 Hljóðkerfisröskun, hljóðkerfisvitund, hljóðkerfisferlar, framburðarfrávik. Skilgreiningar og kynning á nýjum spennandi spilum sem styrkja hljóðkerfisvitund -undirstöðuþætti fyrir lestur  Valdís B. Guðjónsdóttir, talmeinafræðingur 12:00-13:00 Matur
13:00-13:30 Leið til læsis - Nýtt íslenskt skimunartæki - handbók með úrræðum eftir skimun með áherslu á samstarf fagstétta . Steinunn Torfadóttir, lektor
13:30-13:50 Leið til árangurs - kennsluúrræði og skipulagt foreldrasamstarf eftir að búið er að leggja fyrir Leið til læsis. Helena Rafnsdóttir, deildarstjóri
14:00-14:30 Kynning á TRAS - skráning á málþroska ungra barna í daglegu starfi leikskólans Björk Alfreðsdóttir, sérkennslufulltrúi
14:30-15.00 Kaffi
15:00-15:30 ADHD: Ekki bara erfið hegðun - tengsl við stýrivirkni heilans Stefán Hreiðarsson, barnalæknir
15:30-16:00 Gagnreyndar aðferðir fyrir foreldra og fagfólk til að takast á við erfiða hegðun barna. Margrét Sigmarsdóttir, sálfræðingur

  • 29.11.2012 9:00 - 16:00