Íslenski safnadagurinn - Byggðasafn Hafnarfjarðar
Á íslenska safnadaginn sunnudaginn 8. júlí býður Byggðasafn Hafnarfjarðar gestum sínum að skoða fjölbreyttar sýningar í þremur safnhúsum við Vesturgötu auk þess sem Siggubær við Kirkjuveg verður opin fyrir gesti og gangandi.
Þá hafa á Strandstígnum verið settar upp tvær nýjar ljósmyndasýningar.
Hæst ber sumarsýningin í Pakkhúsinu Vesturgötu 8, sem nefnist „Í anda kaþólskrar mannúðar“ saga St. Jósefsspítala.
Á Strandstígnum hafa verið settar upp tvær áhugaverðar ljósmyndasýningar: Sýningin Frjáls/Free eru ljósmyndir Hallgríms Guðmundssonar og NPA miðstöðvarinnar er sýnir mikilvægi þess að ryðja burt kerfislægum og menningabundnum hindrunum og veita fötluðu fólki viðeigandi aðstoð. Þá er fatlað fólk, líkt og ófatlað fólk, jafn fært um að vera frjálst og taka þátt í samfélaginu.
Enn fremur hefur Byggðasafnið unnið ljósmyndasýningu úr Hafnarfjarðarmyndum úr safni Sigurðar Jónssonar áhugaljósmyndara og fyrrum forstjóra Pappírs hf. en fæstar myndanna hafa áður verið birtar opinberlega. *
Sýningahús Byggðasafnsins eru opin frá kl. 11-17 og er aðgangur ókeypis.
