Dagskrá íslenska safnadagsins í Hafnarfirði
Byggðasafn Hafnarfjarðar - Pakkhúsið Vesturgata 8 Opið frá 11-17. Ókeypis aðgangur.
„Í anda kaþólskrar mannúðar“ saga St. Jósefsspítala. Sumarsýning Byggðasafns Hafnarfjarðar
„Þannig var...“ saga Hafnarfjarðar frá landnámi til okkar daga.
Leikfangasýning.
Byggðasafn Hafnarfjarðar - Sívertsens-húsið Vesturgata 6 Opið frá 11 – 17. Ókeypis aðgangur. Saga Bjarna Sívertsen og heimili yfirstéttafjölskyldu frá fyrri hluta 19. aldar.
Byggðasafn Hafnarfjarðar - Siggubær Kirkjuvegur 10. Opið frá 11 – 17. Ókeypis aðgangur. Heimili alþýðufjölskyldu frá fyrri hluta 20. aldar.
Byggðasafn Hafnarfjarðar - Bookless Bungalow Vesturgata 32. Opið frá 11 – 17. Ókeypis aðgangur. Saga erlendu útgerðarinnar í Hafnarfirði í upphafi 20. aldar.
Strandstígurinn Milli Fjarðargötu og Herjólfsgötu Opnun tveggja ljósmyndasýninga: Hafnarfjarðarmyndir úr safni Sigurður Jónssonar áhugaljósmyndara og forstjóra Pappírs hf. Frjáls – Free. Ljósmyndir Hallgríms Guðmundssonar og NPA miðstöðvarinnar.
Hafnarborg Strandgötu 34|Sími: 585 5790 |www.hafnarborg.is Aðgangur ókeypis Síðasta abstraktsjónin – Eiríkur Smith Á sýningunni Síðasta abstraktsjónin eru verk eftir Eirík Smith frá árunum 1964 – 1968. Hús - Hreinn Friðfinnsson. Leiðsögn um sýningarnar kl. 13:30 Ólöf K. Sigurðardóttir.
