Leikskólinn Hvammur - Sumarferð í Húsdýragarðinn
Í ár eins og síðustu ár munu starfsmenn og allir nemendur leikskólans Hvamms fara saman í sumarferð leikskólans í Húsdýragarðinn í Reykjavík. Þar fá börnin fræðslu um dýrin og geta skoðað þau í návígi. Einnig munum við grilla pylsur í fjölskyldugarðinum og skoða leiktækin sem þar eru í boði og gera okkur glaðan dag í "sveit" höfuðborgarinnar.
Við leggjum af stað með þremur rútum strax eftir morgunverð kl. 9:30 og aftur heim úr garðinum kl. 14:00 með þeirri undantekningu að börnin á Sól- og Skýjaborg fara heim kl. 12:15 þegar þau hafa lokið við að borða í garðinum og hvílast síðan í leikskólanum líkt og venjulega.
Vonandi viðrar vel en ef ekki þá munum við færa daginn eitthvað til. Sumarferðin er í boði foreldrafélags leikskólans.
