Víkingahátíð Fjörukrárinnar 14.-17. Júní 2012
Á víkingahátíðina koma fjöldi listamanna hvaðanæva að úr Evrópu og Ameríku. Lögð er áhersla á að allt sé sem upprunalegast, að hátíðargestum finnist sem þeir hafi verið færðir þúsund ár aftur í tímann og þeir eins og fyrir einhvers konar kraftaverk séu staddir á sumarkaupstefnu. Skip frá útlöndum hefur komið til hafnar og verið tekið í naust, vörur bornar á land og kaupmenn hafa tekið upp varning sinn og stunda kaupskap. Það er mikið um dýrðir, tónlist, trúðleikar og dansmeyjar, mungát góð eins og segir í fornum bókum og borð svigna undan kræsingum.
Á Víkingahátíðinni 2012 verður enn reynt að kynna til sögunnar nýja og ferska strauma. Nýjar hetjur verða kallaðar til og alls má gera ráð fyrir að víkingar
