Viðburðir

Sjómannadagurinn

Dagskrá

Kl. 10 Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur við Hrafnistu.

Kl. 10:30 Blómsveigur lagður að minnisvarða um horfna sjómenn við Víðistaðakirkju.

Kl. 11 Sjómannamessa í Fríkirkjunni.

Kl. 13–16 Hátíðardagskrá við smábátahöfnina (Flensborgarhöfn við Óseyrarbryggju).

13-16 Skemmtisigling – leggur af stað á hálftíma fresti.

14 Setning, heiðrun sjómanna og skemmtidagskrá. Lúðrasveit Hafnarfjarðar og skemmtidagskrá. Kappróður, fjöldi sveita keppir um hinn eftirsótta bikar. Björgunarsveit Hafnarfjarðar sviðsetur björgunaraðgerð og sýnir búnað. Leiktæki Björgunarsveitarinnar á svæðinu; kassaklifur og kararróður. Listflug Björns Thoroddsen.

Opið hús hjá Siglingaklúbbnum Þyti, Strandgötu 88.

  • 3.6.2012