Fjölskyldudagskrá á Víðistaðatúni 17.júní
Fjölskyldudagskrá á Víðistaðatúni 17.júní
13:00 17. júní frjálsíþróttamótið
Keppt í boltakasti, spretthlaupi og langstökki
13:45 Víkingabardagi, Rimmugýgur
14:00 Strandhandbolti. Meistaraflokkar karla og kvenna
Haukar – FH
Leikir og fjör á Víðistaðatúni
Á Víðistaðatúninu verður hægt að fara í fjölbreytta leiki og þrautir sem henta börnum á öllum aldri. Starfsmenn Vinnuskólans hafa búið til skemmtilega aðstöðu fyrir alls konar leiki og fengið stuðning ýmissa félagasamtaka:
Mínígolf, , bátar á tjörninni frá Þyt, klifurveggur við skátaheimili, Litli róló, kynning á tennis á tennisvellinum, borðtennisborð frá BH, nokkur leiktæki frá Skátalandi, Skólahreystibrautin, andlitsmálun og nokkrir heimagerðir skotbakkar og þrautir. Leikfangabílar fyrir yngstu börnin við Víðistaðakirkju. Listahópur Vinnuskólans með uppákomur.
Kaffisala Skátafélagsins Hraunbúa verður í Skátaheimilinu við Víðistaðatún.
Kvartmíluklúbburinn sýnir bíla
15:10 Fjölskylduskemmtun á sviði
Setning og ávarp: Margrét Gauja Magnúsdóttir, forseti bæjarstjórnar
Karlakórinn Þrestir
Gói og baunagrasið
Söngvaborg
Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar
Hairspray
